Skemmtilegast þegar börnin setja upp fyrstu gleraugun

Samhent fjölskylda  Mynd/Karl Eskil
Samhent fjölskylda Mynd/Karl Eskil

 Gleraugnasalan Geisli á Akureyri er rótgróið fjölskyldufyrirtæki, sem fagnar um þessar mundir 45 ára afmæli.  Hjónin Ásta Einarsdóttir og Björn Óskar Björnsson sjóntækjafræðingur reka fyrirtækið, 16 ára dóttir þeirra og 19 ára sonur  starfa við fyrirtækið og yngsti sonurinn er farinn að hjálpa til. Ásta er dóttir stofnandans og byrjaði að vinna hjá föður sínum fyrir þremur áratugum.

„Já, ég var aðeins fimmtán ára gömul, þegar ég byrjaði að vinna hjá pabba og sinnti ýmsum störfum sem hann fól mér að inna af hendi. Geisli var fyrst í Amaróhúsinu í Hafnarstræti en þegar Kaupangur var byggður fluttist starfsemin þangað. Í dag erum við á tveimur stöðum,  í Kaupangi og einnig á Glerártorgi,“ segir Ásta.

Blóm frá ánægðum viðskiptavinum

 „Já, já, það er alltaf sama kennitalan á fyrirtækinu, ég giska á að það séu ekki mjög mörg fyrirtæki í bænum sem geta státað af eldri kennitölu en við. Hingað koma viðskiptavinir sem hafa skipt við Geisla í áratugi. Svo þekkjum við mörg dæmi um fólk sem kom upphaflega með foreldrum sínum en kemur í dag með börnin sín, eða jafnvel barnabörn. Sem betur fer erum við í góðum tengslum við okkar viðskiptavini. Við fáum oft sendar þakkir og kveðjur á facebook og það kemur meira segja fyrir að við fáum send blóm frá ánægðu fólki. Okkar markmið er fyrst og fremst að veita góða þjónustu og það reynum við að gera eftir bestu getu. Við erum svo heppinn að hafa gott og  reynslumikið starfsfólk .”

Fyrstu gleraugun

„Skemmtilegast er þegar börnin setja upp sín fyrstu gleraugu. Þau brosa strax út að eyrum, enda komin með góða sjón. Börn sem eru með skerta sjón eru fljót að aðlagast raunveruleikanum, en þegar þau fá sín fyrstu gleraugu blasir heimurinn við þeim skýr og tær. Ég er búin að setja ansi mörg gleraugu á börn og það er alltaf mikil og skemmtileg upplifun.“

Nánar er rætt við Ástu í prentútgáfu Vikudags

karleskil@vikudagur.is

Nýjast