Hún var ófögur sjónin sem blasti við starfsfólki Akureyrarkirkju í morgun þegar það mætti til vinnu. Búið var að spreyja á kirkjuna allskyns ófögrum orðum. Svavar Alfreð Jónsson, prestur í Akureyrarkirkju, segir í samtali við Vikudag þetta afar leiðinlegt og sérstaklega í ljósi þess að útför fer fram í kirkjunni í dag.
"Nú hefst vinna við að hreinsa þetta burt og vonandi tekst það áður en útförin fer fram," segir Svavar. Hann segir að svona skemmdarverk hafi áður verið unnin á kirkjunni en þetta sé með mesta móti. Svavar segir að mest hafi verið spreyjað á framhlið og suðurhlið kirkjunnar. Ekki er vitað hverjir voru að verki.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri var einnig spreyjað á Kaþólskukirkjuna, Glerárkirkju og Hvítasunnukirkjuna.