Skattamálum Samherja lokið og sakamál felld niður

Vilhelm Þorsteinsson EA við komu til heimahafnar i fyrsta sinn    Mynd  Vikublaðið
Vilhelm Þorsteinsson EA við komu til heimahafnar i fyrsta sinn Mynd Vikublaðið

Skattamálum á hendur félögum tengdum Samherja hefur verið að fullu lokið í sátt á milli skattrannsóknarstjóra og Samherja. Þessar málalyktir felast í endurálagningu Skattsins á félög í samstæðu Samherja vegna rekstraráranna 2012-2018. Samhliða hefur embætti héraðssaksóknara fellt niður sakamál á hendur félögunum og starfsfólki þeirra og staðfest að hvorki stjórnendur né starfsmenn samstæðunnar hafi gerst sekir um refsiverð brot vegna þessa.

Framangreind rannsókn tók til bókhalds og skattskila samstæðu Samherja hf. árin 2010-2018 þar sem öll gögn í rekstri þeirra félaga sem um ræðir voru ítarlega yfirfarin.

Niðurstaðan felst í eftirfarandi:

  • Samherji hf. greiðir viðbótarskatt vegna staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingagjalds af nokkrum sjómönnum á erlendum skipum. Að teknu tilliti til leiðréttinga á tekjuskattsálagningu nemur nettó viðbótarskattgreiðsla Samherja hf. 60 milljónum króna. Á þessu tímabili greiddi félagið 30.116 milljónir króna í skatta og hækkar skattgreiðsla félagsins því um 0,2% á tímabilinu vegna þessa.
  • Samherji hf. greiðir 15 milljónir króna í stjórnvaldssekt til ríkissjóðs vegna vangoldins tryggingagjalds.
  • Sæból fjárfestingafélag ehf. greiðir tæplega 153 milljónir króna í viðbótarskatt. Þar af eru 20% fjárhæðarinnar vegna álags. Skattlagningin kemur til þar sem tekjur dótturfélags Sæbóls erlendis voru taldar skattskyldar hér á landi. Þær tekjur fengust reyndar aldrei greiddar. Um þennan þátt málsins ríkti veruleg réttaróvissa sem skorið var úr með nýlegum dómi Landsréttar í sambærilegu máli. Á því tímabili sem var til rannsóknar greiddi Sæból alls 2.300 milljónir króna í skatta og hækkar skattgreiðsla félagsins því um 6% á tímabilinu.
  • Mál sem voru til rannsóknar hjá héraðssaksóknara hafa verið felld niður og réttarstaða þeirra einstaklinga sem eiga í hlut einnig.

Við framangreindar fjárhæðir, sem greiddar eru til ríkissjóðs, bætast dráttarvextir líkt og venja er við uppgjör slíkra mála.

„Fyrir þremur árum voru settar fram mjög alvarlegar ásakanir á hendur okkur um skattsvik og peningaþvætti sem var sagt hlaupa á milljörðum króna. Nú er komið í ljós að ekki stóð steinn yfir steini í þeim ásökunum og skattamálum okkar er nú lokið með niðurfellingu sakamála og nýrri álagningu eins og alvanalegt er í hefðbundnum skattamálum þar sem uppi eru álitamál um túlkun á skattskyldu,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja.

Ágreiningur um skattskyldu

Verulegur ágreiningur var um skattskyldu í þessum málum og skoðanir Samherja hf. og Skattsins ólíkar um lagagrundvöll skattskyldunnar. Gaumgæfileg skoðun Skattsins leiddi í ljós að gera mætti ráð fyrir að sá háttur sem hafður var á hefði ekki verið fullnægjandi í strangasta lagaskilningi. Líklegt væri að skattskylda hefði myndast að minnsta kosti að einhverju leyti. Við það bættist nýlegur dómur Landsréttar í eðlislíku máli þar sem réttaróvissu sem hér skipti máli var eytt og það félag sem þar átti í hlut dæmt til skattskyldu.

Við þessar aðstæður taldi Samherji rétt að fallast á túlkun Skattsins og þar með skattskyldu. Við þá ákvörðun vó þungt að átta einstaklingar höfðu verið ranglega hafðir fyrir sök og haft réttarstöðu sakborninga um árabil í tengslum við umrædd skattamál. Var ljóst að ef til málaferla kæmi myndu þeir þurfa að sæta því álagi sem slíku fylgir um ókomin ár. Að mati stjórnenda Samherja hf. var afar mikilvægt að geta leyst úr þeim fjötrum sem slíkri réttarstöðu fylgir fyrir þá einstaklinga sem í hlut eiga. Hér skipti einnig miklu máli að orrahríð opinberra aðila hefur staðið á Samherja hf., samstæðufélögum þess, stjórnendum og starfsmönnum í rúman áratug. Því hefur fylgt mikið álag og inngrip í rekstur Samherja ekki síst vegna þess að fjöldi starfsmanna hefur haft réttarstöðu sakborninga á þeim tíma.

Þá skiptir miklu fyrir reksturinn að vinnufriður skapist, starfsfólk geti gengið til sinna starfa með eðlilegum hætti, ótruflað af málarekstri ef nokkur kostur er að ljúka honum, jafnvel þótt í því felist að gefið sé eftir um ítrustu kröfur í málsvörnum og aukin útgjöld fyrir félagið. Eins og áður segir nema þau útgjöld aðeins 0,6% aukningu á greiddum sköttum á því tímabili sem um ræðir og hafa ekki umtalsverð áhrif á rekstur umræddra félaga.

Hreinsuð af alvarlegum ásökunum

„Í þessum málum fór fram rækileg rannsókn á öllum rekstri í samstæðu Samherja. Félagið vann af heilindum með skattyfirvöldum og afhenti öll þau gögn sem óskað var eftir. Skattrannsóknarstjóri átti frumkvæði að því að ljúka málunum með sátt, svo því sé haldið til haga. Það hefur verið óvenjulega hvöss umræða um félagið og okkar fólk, bæði í fjölmiðlum og á Alþingi. Það er því mikill léttir að geta hreinsað burt svo alvarlegar ásakanir með staðfestingu opinberra aðila. Hér er lykilatriði að málunum er nú lokið án þess að höfðað sé mál á hendur félaginu eða nokkrum einstaklingi,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.

Frá þessu segir heimasíða Samherja www.samherj


Athugasemdir

Nýjast