Sjómenn Samherja standa með fyrirtæki sínu ásamt LÍÚ. Með því að fresta brottför flotans er verið að mótmæla harðlega aðför að störfum okkar og kjörum um ókomna tíð. Svo ekki sé minnst á áhrif frumvarpanna í okkar heimabyggð, að halda öðru fram er algjör firra. Á hverjum halda stjórnvöld að veiðileyfisgjaldið og kvótatilfærslurnar muni eiginlega bitna á? Það er með öllu óskiljanlegt að stjórnvöld skuli ekki setjast niður með hagsmunaaðilum í þeirri grein sem mæðir mest á við endurreisn samfélagsins eftir hrun. Með því mætti komast hjá fyrirsjáanlegum stóráföllum í greininni í framtíðinni, segir í yfirlýsingu sem samþykkt var einróma á fundi meðal allra sjómanna Samherja og Útgerðarfélags Akureyringa í gær.
Þar segir ennfremur: Miklum meirihluta álitsgjafa ber saman um að kvótafrumvörpin séu til stórskaða fyrir þjóðina. Við viljum, eins og aðrir, að góð sátt náist við þjóðina um þessi mál. Sú sátt næst ekki með einhliða ákvörðun stjórnvalda, hvorki í þessari grein né annarri. Samræður skipta öllu máli til að ásættanleg niðurstaða náist. Af gefnu tilefni viljum við koma því á framfæri að sjómenn vilja ekki einungis hafa stærri útgerðir í landinu eins og fólk virðist túlka þegar við tjáum okkur um þessi mál. Heldur gagnrýna að verið sé að færa aflaheimildir frá einum yfir á annan með einu pennastriki. Skipunum sem við erum á er lagt svo einhverjir aðrir geti farið á veiðar. Því hvetjum við stjórnvöld eindregið til að endurskoða frumvörpin svo allir megi vera sáttir.