Sjálfstæðisfólk í NA kjördæmi ræðir framboðsmál um helgina

Formaður flokksins verður í Mývatnssveit um helgina
Formaður flokksins verður í Mývatnssveit um helgina

 Kjördæmisþing Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi verður haldið á Skjólbrekku í Mývatnssveit á morgun og sunnudag. Á fundinum verður lögð fram tillaga stjórnar kjördæmisráðs um að prófkjör fari fram laugardaginn 26. janúar við val á framboðslista flokksins við þingkosningar í apríl. Þingmennirnir Kristján Þór Júlíusson og Tryggvi Þór Herbertsson vilja báðir halda áfram á þingi og búast má við að fleiri tilkynni á þinginu þátttöku í prófkjörinu.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast