Það virðist sem Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki haft áhuga á að hitta okkur og það finnst mér mjörg sérstakt, segir Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar á Akureyri. Þrír fulltrúar L-listans, ásamt bæjarstjóra Akureyrar, héldu til Reykjavíkur um miðjan október sl. á fund með formönnum og þingflokksformönnum fjórflokkanna. Ekkert varð þó af fundi með Sjálfstæðisflokknum.
Þrátt fyrir ítrekaða tölvupósta fengum við aldrei nein svör frá Sjálfstæðisflokknum. Maður hefði haldið að þar hefðu menn áhuga á að hitta fulltrúa stærsta sveitarfélag landsins utan höfuðborgarsvæðisins. Þetta segir kannski eitthvað um hvernig menn hugsa, sem er ekki langt út fyrir höfuðborgarsvæðið, segir Geir Kristinn.
Tilgangur ferðarinnar var að efla samskiptin þar sem L-listinn á ekki fulltrúa inn á Alþingi. Þegar Vikudagur leitaði svara hjá Sjálfstæðisflokknum var þvertekið fyrir áhugaleysi og sagt að um misskilning hafi verið að ræða.