Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fengi fjóra bæjarfulltrúa

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi allra stjórnmálaflokka á Akureyri eða 28,6% og fengi fjóra kjörna bæjarfulltrúa ef gengið yrði til kosninga í dag. Sjálfstæðisflokkurinn myndi því bæta við sig einum manni frá síðustu sveitarstjórnarkosningum. Framsóknarflokkurinn tapar hins vegar manni. Flokkurinn mælist með 9,6% fylgi og fengi einn mann kjörinn ef kosið yrði nú.

Þetta sýna niðurstöður skoðanakönnunnar sem Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) framkvæmdi fyrir Vikudag um fylgi þeirra flokka sem bjóða fram á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara á laugardaginn 26. maí.

Samfylkingin mælist með 19,3% og fengi tvo menn kjörna líkt og fyrir fjórum árum. L-listinn fengi sömuleiðis tvo menn kjörna. Flokkurinn mælist með 19% fylgi og héldi sínum tveimur bæjarfulltrúum. Munurinn á milli Samfylkingar og L-listans er ekki marktækur. Vinstri grænir mælast með 10,7% fylgi og einn mann kjörinn líkt og í síðustu kosningum.

Miðflokkurinn mælist með 7,8% fylgi og fengi einn mann kjörinn. Píratar mælast með 5,1% fylgi og næði ekki fulltrúa inn í bæjarstjórn. Þessir tveir flokkar eru að bjóða fram í fyrsta sinn á Akureyri en framboðslistar þeirra lágu ekki fyrir þegar könnunin hófst.

Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar myndi meirihluti bæjarstjórarnar Akureyrar, sem skipaður er Framsóknarflokki, Samfylkingunni og L-listanum, falla ef kosið yrði í dag.

Könnunin var framkvæmd á tímabilinu 23. apríl til 4.maí. Haft var samband við rúmlega þúsund manns í gegnum tölvupóst og fengust 663 svör. Óákveðnir voru 243 og 24 vildu ekki svara. Tveir sögðust kjósa annan flokk og tuttugu ætluðu ekki að kjósa. Svarhlutfallið var 62%.

Sjálfstæðismenn bæta mest við sig

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi um 2,8% frá sveitarstjórnarkosningunum árið 2014 en flokkurinn fékk þá 25,8% fylgi. Samfylkingin bætir við sig 1,7% fylgi á milli kosninga en flokkurinn fékk 17,6% fylgi árið 2014. Fylgi Vinstri grænna stendur nánast í stað frá síðustu kosningum, en flokkurinn fékk þá 10,5% fylgi. Framsóknarflokkurinn tapar mestu fylgi eða 4,5%. Flokkurinn fékk 14,2% fylgi árið 2014. L-listinn tapar rúmlega 2% en flokkurinn fékk 21,1% fyrir fjórum árum. Hvorki Píratar né Miðflokkurinn buðu fram í sveitarstjórnarkosningum árið 2014.  

Ítarlega verður fjallað um niðurstöður könnunarinnar í Vikudegi sem kemur út á morgun, fimmtudaginn 10. maí. Þar verða m.a. fengin viðbrögð allra oddvita flokkana sjö í framboði við niðurstöðunum og skoðað hverjir mynda bæjarstjórn miðað við könnunina og hverjir séu næstir inn. 

 


Athugasemdir

Nýjast