Sigurganga Þórs heldur áfram

Mynd/Sævar Geir.
Mynd/Sævar Geir.

Sigurganga Þórs í 1. deild karla í knattspyrnu hélt áfram í kvöld er liðið skellti Fjölni, 1-0, á heimavelli sínum. Kristinn Þór Björnsson skoraði eina mark leiksins eftir klukkutíma leik. Þórsarar voru þegar komnir upp um deild fyrir leikinn í kvöld en fóru langleiðina með að tryggja sér sigurinn í deildinni. Fjölnir á hins vegar enga möguleika á að fylgja Þór í efstu deild eftir tapið í kvöld.

Nýjast