Sigurður Marinó með þrennu í glæsilegum sigri Þórs í Evrópukeppninni

Sigurður Marinó Kristjánsson fagnaði vel í leikslok líkt og aðrir Þórsarar.
Sigurður Marinó Kristjánsson fagnaði vel í leikslok líkt og aðrir Þórsarar.

Sigurður Marinó Kristjánsson skoraði þrennu fyrir Þór í glæsilegum sigri liðsins á írska liðinu Bohemian FC í forkeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu á Þórsvellinum í kvöld. Lokatölur leiksins urðu 5:1 en eftir Þórsarar höfðu haft eins marks forystu í hálfleik 2:1. Fyrri leik liðanna í Dublin fyrir viku, lauk með markalausu jafntefli og Þórsarar eru því komnir áfram í Evrópukeppninni og mæta tékknesku liði í næstu umferð. Það voru Írarnir sem byrjuðu betur á Þórsvellinum í kvöld og þeir náðu forystu í fyrri hálfleik. Sigurður Marinó jafnaði með glæsilegu skoti úr teignum og Orri Freyr Hjaltalín kom Þór yfir fyrir hlé með glæsilegum skalla úr teignum. Snemma síðari hálfleik urðu Írarnir fyrir því að skora sjálfsmark og þar með var mesti vindurinn úr þeim. Þórsarar gengu á lagið og Sigurður Marinó bætti við tveimur mörkum áður en yfir lauk. Viðureignirnar gegn Bohemian voru fyrstu Evrópuleikirnir í sögu Þórs og liðið er því taplaust í keppninni.

Nýjast