Sigurði Guðmundssyni bæjarfulltrúa Akureyrarlistans á Akureyri bar að skrifa undir fundargerð síðasta bæjarráðsfundar, segir Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi L-listans á fréttavef RÚV. Fram kom í fréttum RÚV í gær að Sigurður hafi neitað að undirrita fundargerðina, þar sem honum var meinað um að láta bóka ósk um umræður í ráðinu um stöðu uppbyggingar á Grímsstöðum á Fjöllum. Oddur Helgi segir að fyrirhuguð uppbygging hafi ekki verið á dagskrá fundarins.
Samkvæmt lögfræðiáliti hafi áheyrnarfulltri heimild til að fá bókaðar stuttar athugasemdir um afstöðu þeirra mála sem til umræðu séu. Þá bendir Oddur Helgi á að samkvæmt samþykkt um stjórn Akureyrarkaupstaðar beri viðstöddum bæjarfulltrúum að rita nöfn sín í gerðarbók við slit fundar, segir ennfremur á fréttavef RÚV.