Akureyri lagði Fram að velli með 28 mörkum gegn 23 í Safamýrinni í kvöld í N1-deild karla í handknattleik. Bjarni Fritzson skoraði ellefu mörk fyrir Akureyrarliðið sem hafði þriggja marka forystu í hálfleik, 14-11. Hjá fram voru Jón Arnar Jónsson og Jóhann Gunnar Einarsson markahæstir með fimm mörk hvor. Akureyri hefur þrjú stig eftir tvo leiki en Fram er án stiga.