Sigmundur Davíð ætlar að flytja lögheimilið í NA kjördæmi

Sigmundur Davíð á kjördæmisþingi Framsóknarflokksins í NAkjördæmi um síðustu helgi.
Sigmundur Davíð á kjördæmisþingi Framsóknarflokksins í NAkjördæmi um síðustu helgi.

Sigmundur Davíð Gunnlaugssn formaður Framsóknarflokksins vill fara fyrir framboðslista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Á tvöföldu kjördæmisþingi, sem haldið verður  í Mývatnssveit þann 1. desember, verður framboðslistinn ákveðinn. Sigmundur Davíð og Höskuldur Þór Þórhallsson þingmaður flokksins í kjördæminu stefna báðir á fyrsta sætið.

Sigmundur segist ætla að flytja lögheimili sitt í kjördæmið.

„ Nei, ég er ekki búinn að því, en það stendur að sjálfsögðu til.“

Hvenær ætlarðu að flytja lögheimilið ?

„Þetta er allt saman í skoðun. Það eru margir afskaplega aðlaðandi staði í kjördæminu, skemmtilegir bæir og sveitir og gott fólk um allt kjördæmið, þannig að það er erfitt að taka ákvörðun um hvar maður á að búa.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast