Kolbeinn Höður Gunnarsson hjá UFA setti nýtt Íslandsmet í flokki 16-17 ára pilta í 200 m hlaupi er hann hljóp metrana á 21,94 sek. á frjálsíþróttamóti í Mannheim í Þýskalandi sl. helgi. Kolbeinn keppti einnig í 400 m hlaupi og bætti sinn árangur er hann kom í mark á tímanum 49,27 sek. Alls kepptu sex íslenskir unglingar á mótinu sem er eitt stærsta frjálsíþróttamót Evrópu en alls voru þátttakendur um 500 manns víðs vegar að úr heiminum.