Setja 85 þúsund kr. og logo Akureyrarstofu til stuðnings auglýsingablaði kaupmanna

Akureyrarstofa, Kaupmannasamtökin og almannatengslaskrifstofan Athygli gáfu í morgun út blaðið “Akureyri” sem dreifa á í öll hús í bænum auk þess sem blaðinu er dreift með Morgunblaðinu til áskrifenda Morgunblaðsins vítt um land. Um er að ræða kynningarblað fyrir ýmisar verslanir og fyrirtæki þar sem viðkomandi auglýsa vörur sínar og þjónustu auk þess sem fjallað er um fyrirtækin og starfsólk þess í kynningartexta.

Að sögn Þórgnýs Dýrfjörð forstöðumanns Akureyrarstofu er aðkoma bæjarins að þessu blaði fyrst og fremst fólgin í því að kaupa sem nemur heilsíðu auglýsingu og fá í staðin umfjöllun um eitthvað sem tengist bænum og því sem þar er um að vera. Þess utan felst að sjálfsögðu ákveðið vörumerki í því að Akureyrarbær standi að útgáfunni og að blaðið sé því að hluta á ábyrgð opinberra aðila. Útlagður kostnaður Akureyrarstofu til kynningar á varningi og þjónustu kaupmanna nemur samkvæmt upplýsingum frá Þórgný um 85 þúsund krónum í þessu blaði, en svipuð blöð hafa einnig verið gefin út fyrir jólin.

Aðspurður segir Þórgnýr að þessi stuðningur og þetta samstarf við Kaupmannasamtökin og Athygli fari fram undir formerkjum stuðnings við ferðaþjónustu og miði að því að kynna Akureyri sem verslunar og þjónustubæ. Hann segir hins vegar að bærinn hafi lítið sem ekkert um það að segja hvernig efnistökin í blaðinu séu eða hvað sé fjallað um og hvernig. Þó viti hann til þess að stundum áður hafi verið reynt að víkka út efnisvalið og gera það breiðara. Hann vill hins vegar ekki leggja dóm á það hvernig til hefur tekist með þetta samstarfsverkefni Akureyrarstofu, Kaupmannasamtakanna og Athygli.

Nýjast