Í tilefni Afmælisvöku Akureyrar mun Vodafone í samstarfi við N4 og Akureyrarstofu senda út sérstaka sjónvarpsstöð um helgina. Þar munu gestir Afmælisvöku geta látið ljós sitt skína á sjónvarpsstöð sem nær til stórs hluta landsmanna með því að senda inn myndir og tíst í gegnum snjallsíma sína. Sent verður út á föstudag frá kl. 13:00 til 18:00, allan laugardaginn og endursýning á dagskránni verður á sunnudeginum.
Samskonar sjónvarpsstöð var sett á laggirnar í fyrsta sinn hér á landi fyrir Menningarnótt í Reykjavík og var þátttaka framar vonum. Næstum 1.700 myndir voru sendar inn með merkingunni #menningarnótt og yfir 440 "tíst" send inn með sömu merkingu. Stöðin verður send út á hefðbundinni rás sjónvarpsstöðvarinnar N4. Þar verða birt myndskeið sem sýna stemmninguna á Akureyri og sent beint frá stórtónleikum Afmælisvöku og flugeldasýningu hátíðarinnar sem er í boði Vodafone. Meginuppistaða útsendingarinnar verða hins vegar myndir sem teknar eru með snjallsímaforritinu Instagram og merktar eru #akureyri og tíst af samskiptamiðlinum Twitter sem merkt eru #akureyri. Þannig munu allir snjallsímanotendur með iPhone, Android-snjallsíma eða iPad-spjaldtölvu geta sent inn myndir með Instagram og tekið þátt í útsendingunni. Allir notendur Twitter geta með sama hætti komið sínu tísti í tíststraum stöðvarinnar.
Rekstraraðilar á Akureyri eru hvattir til að sýna stöðina svo gestir geti séð myndir sínar og annarra gesta á meðan á viðburðinum stendur. Hægt verður að ná stöðinni á hefðbundnum útsendingarrásum sjónvarpsstöðvarinnar N4, sem eru rás 29 í Vodafone Sjónvarpi um ADSL og ljósleiðara, rás 15 með Digital Ísland myndlyklum á Akureyri og rás 6 á sjónvarpsdreifikerfi Símans. Stöðin næst einnig um loftnet á Akureyri á rás 53, á rás 29 um örbylgjudreifikerfi Digital Ísland á suðvesturhorninu og vefútsendingu má finna á vefnum n4.is.
Instagram er eitt vinsælasta snjallsímaforrit frá upphafi, en með því geta notendur tekið myndir og deilt þeim til vina á einfaldan hátt. Með því að bæta við merkingu á borð við #akureyri í myndatextann má safna saman öllum myndum sem tengjast ákveðnum málefnum. Nöfn allra sem senda inn mynd með Instagram sem birtist í sjónvarpi Afmælisvöku fara í pott og hlýtur einn heppinn þátttakandi hinn vinsæla Samsung Galaxy S III snjallsíma í vinning í boði Vodafone. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um hvernig sækja á Instagram og senda myndir inn á sjónvarpsstöðina má finna á á Vodafone.is og Facebook-síðu Vodafone, segir í fréttatilkynningu.