Fyrirtækið Seigla á Akureyri, sem er hvað þekktast fyrir að smíða glæsilega plastbáta af ýmsum stærðum og gerðum, hefur lokið við smíði á nýjum spöðum í vindmylluna í Belgsholti í Melasveit í Borgarfirði. Gömlu spaðirnir eyðilögðust þegar mótorinn og spaðarnir fuku í miklu hvassviðri þann 29. nóvember sl. en vindmyllan var gangsett fyrir réttu ári. Nýju spaðarnir, sem eru 6,5 metra langir, eru úr trefjaplasti og stáli. Haraldur Magnússon bóndi í Belgsholti sótti spaðana til Seiglu í morgun og hann stefnir að því að koma rafmagnsframleiðslunni af stað á ný sem allra fyrst. Hann sagði að aldrei hafi komið annað til greina en að endurreisa vindmylluna og endurbæta það sem ekki hafði reynst nægilega vel. Haraldur hefur lækkað mastur vindmyllunnar úr 24 metrum í 15 metra, þar sem komið hefur í ljós að vindur eykst svo mikið hraðar í meiri hæð, sem veldur því að myllan slær fyrr út vegna yfirvinds. Þá sér fyrirtækið Raftákn um endurhönnun tölvubúnaðar og forritun á stjórnkerfi myllunnar.
Orsökin fyrir því að vindmyllan braut sig af mastrinu var að hún hagaði sér ekki rétt í miklum vindi. Af þeim sökum kom yfirálag á spaðana og tveir af þremur klofnuðu og fuku af, en einn varð eftir og þá kom mikið kast á mylluna og hún braut sig af mastrinu og féll til jarðar. Mylluhúsið er rúmt tonn að þyngd. Vindmyllan í Belgsholti var eina vindmyllan hérlendis sem var tengd almenna raforkukerfinu. Hún framleiddi að hámarki 30 kW, í vindi sem er 10 m/sek. og það rafmagn sem Haraldur þurfti ekki að nota sjálfur, seldi hann inn á dreifikerfi Rarik. Ávinningurinn af þessari framkvæmd liggur þó fyrst og fremst í því að framleiða rafmagn til eigin nota. Með vindmyllunni lækkaði rafmagnskostnaðurinn í Belgsholti um 70%.
Haraldur gerði samning við fyrirtækið Fallorku á Akureyri, dótturfyrirtæki Norðurorku, um kaup á umframleiðslu sinni. Jafnframt keypti Haraldur rafmagn af Fallorku, þegar vindmyllan náði ekki að framleiða nægilegt rafmagn fyrir hann og eins eftir að hún bilaði.