Sauðféð vel haldið í Grímsey
Við vissum að það væri gott fyrir mannfólkið að búa í Grímsey og miðað við það sauðfé sem við fengum hér til lógunar í dag, þá er ljóst að það hefur ekki liðið neinn skort, sagði Sigmundur Hreiðarsson vinnslustjóri Norðlenska á Húsavík núna seinni partinn. Meðalþungi dilka úr Grímsey var 22,49 kg og sá þyngsti var 28,0 kg.Þetta kemur fram á heimasíðu Norðlenska.
Meðalþungi dilka í sláturtíðinni hjá Norðlenska á Húsavík til þessa er 16,67 kg svo bændurnir í Grímsey geta verið stoltir af fínu fé. Ég minnist þess ekki að við höfum áður fengið fé úr Grímsey, svo þetta eru ákveðin tímamót, sagði Sigmundur.