Samningur við Becromal samþykktur

Í morgun voru talin atkvæði í atkvæðagreiðslu um samkomulag milli Einingar-Iðju  og BecromalIcelandehf. með gildistíma frá 1. september 2012. Á kjörskrá voru 65 og greiddu 58 atkvæði, eða 89,2%. Já sögðu 36, eða 62%, nei sagði 21, eða 36,2%. Einn seðill var ógildur (1,8%). Samkomulagið er því samþykkt. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, var mjög ánægður með þessa niðurstöðu, samkvæmt því sem fram kemur á vefsíðu félagsins. „Þetta er afgerandi niðurstaða. Samningalotan tók mjög langan tíma en að lokum náðist góður samningur fyrir starfsmenn í vaktavinnu fyrirtækisins. Helsta ágreiningsefnið var breyting á vaktakerfi. Becromal vildi fara úr 6 vakta kerfi í 5 vakta kerfi. Starfsmenn samþykktu nú þessa breytingu sem mun eiga sér stað þann 1. september nk. Samningurinn er langur, hann gildur til 31. mars 2017. Hann gefur almennar launahækkanir á tímabilinu auk greiðslu bónusar vegna breytinga á vaktakerfi og hækkanir á desember- og orlofsuppbót. Einnig var samið um tækniramma sem gefur starfsmönnum möguleika á að hækka í launum eftir því sem menn verða hæfari í sínu starfi. Þessi samningur er í megin dráttum í samræmi við samninga í stóriðju hér á landi.“

Björn sagði jafnframt að það hefði verið mjög góð samheldni meðal starfsmanna í allri þessari samningalotu. „Ég vil sérstaklega þakka samninganefndinni, sem skipuð var fjórum starfsmönnum Becromal, fyrir yfirveguð og vel unnin störf.“

 

Nýjast