Samið um nýtt húsnæði fyrir Landsbankann á Akureyri

Hofsbót 2-4             Mynd  www.landsbankinn.is
Hofsbót 2-4 Mynd www.landsbankinn.is

Eins og fólki er eflaust i fersku minni seldi Landsbankinn  gamla Landsbankahúsið  við Ráðhústorg s.l. haust.  Nú hefur bankinn tekið á langtímaleigu nýtt húsnæði ekki svo langt frá þeim stað sem hýsir hann i dag.   Nýtt aðsetur bankans verður  í Hofsbót 2-4 og er stefnt að því að bankinn flytji fyrir árslok 2024.  

Um er að ræða húsnæði sem er í byggingu að Hofsbót 2 og einnig hluta jarðhæðar Hofsbótar 4.

 Nýja plássið er samtals um 600 fermetrar að stærð.

 


Athugasemdir

Nýjast