Samið á næstu dögum

Akureyri Handboltafélag mun líklega ganga frá samningi á næstu dögum við serbneska markvörðinn Jovan sem hefur verið við æfingar með liðinu undanfarið. Hannes Karlsson, formaður félagsins, segir mikinn áhuga hjá báðum aðilum um að samningar takist.

Enn eigi hins vegar eftir að ganga frá atvinnuleyfi fyrir leikmanninn, sem er 25 ára, stór og stæðilegur markvörður. „Okkur líst vel á hann og hann er spenntur fyrir okkur. Þetta verður vonandi í höfn fljótlega,“ segir Hannes. Línumaðurinn Hörður Fannar Sigþórsson mun hins vegar ekki leika með Akureyrarliðinu næsta vetur þar sem hann hyggst spila í Færeyjum og því er Ásgeir Jónsson eini línumaður liðsins í dag.

Nýjast