Við höfum ekki gert nein plön ennþá. Ég vil þó minna á forsíðufrétt í Vikudegi fyrir nokkru þar sem m.a. var vitnað í mig. Það stendur enn fyrir sínu. Þetta Vestmannaeyjamál kemur ekki á óvart, svo mikið var búið að vara við þessu, Var kannski haldið að við værum að skrökva!? Þetta segir Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri hjá Samherja þar sem hann var á ferðalagi þegar Vikudagur spurði han hvort eitthvað í ætt við það sem er að gerast í Vestmannaeyjum væri yfirvofandi hjá Samherja. Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hefur ákveðið að segja upp rúmlega 40 manns og selja uppsjávar- og bolfiskskipið Gandí VE í hagræðingarskyni vegna þess að aflaheimildir hafa verið skertar og veiðileyfagjald verður lagt á.
Kristján Vilhelmsson segir tillögur stjórnvalda vera gríðarlega skattlagningu sem muni ekki bara hafa áhrif á fyrirtækið heldur líka á marga utan þess. Þau ummæli sem Kristján vísar til á forsíðu Vikudags voru annars þessi:
Kristján Vilhelmsson hjá Samherja bendir á að í dag, fimmtudag muni samtök útgerðarmanna funda um málið. Það liggur þó alveg í augum uppi að þetta mun hafa mjög veruleg áhrif á allan rekstur Samherja á Íslandi, hann mun augljóslega minnka þar sem verulegur tilflutningur aflaheimilda er úr því kerfi sem Samherji vinnur í í dag. Að sjálfsögðu mun ofurgjaldtaka á greinina hafa mjög veruleg neikvæð áhrif á reksturinn á margan hátt, segir Kristján. Hann bendir einnig á að í greinargerð með fruvarpinu sé beinlínis bent á alvarleg áhrif þess, sóun og að fyrirtæki muni jafnvel verða gjaldþrota.