Á morgun, föstudaginn 5. október, fer fram málstofa í viðskiptafræði kl. 12:10 - 12:55 í stofu L101 í Háskólanum á Akureyri. Í erindi sínu, Samgöngubætur og búferlaflutningar, mun Vífill Karlsson segja frá helstu niðurstöðum doktorsverkefnis sem hann varði 15. september síðastliðinn við Háskóla Íslands. Verkefnið lýtur að rannsókn á landfræðilegum áhrifum samgöngubóta á búferlaflutninga sveitarfélaga á Íslandi.
Fyrst var sagt frá íbúaþróun á Íslandi og þróun samgöngukerfisins. Þar á eftir var farið yfir helstu rannsóknir á búferlaflutningum á Íslandi. Þessu fylgdi síðan umfjöllun um helstu kenningar og líkön á viðkomandi sviði. Í lokin voru framkvæmdar þrjár rannsóknir.
Í fyrstu rannsókninni var samband milli samgöngubóta og íbúðaverðs greint. Samband milli fjarlægðar frá borgarmiðju og íbúðaverðs hefur löngum verið þekkt fyrir að vera neikvætt þ.e. verðið verið hæst í borgarmiðjunni en lækkar eftir því sem fjær dregur.
Í annarri rannsókninni var landfræðilegt litróf íbúðaverðs til skoðunar. Landfræðilegur munur myndast á íbúðaverði vegna virðis á aðgengi sem borgir veita umfram náttúrugæði og annað skynvirði sem dreifbýlið hefur í ríkara mæli.
Í þriðju og síðustu rannsókninni var samband samgöngubóta og búferlaflutninga mælt og prófað. Mismunandi búsetuskilyrði milli staða eru drifkraftar búferlaflutninga.