Sameiginleg starfsemi legudeildar skurðlækninga hlaut hvatningarverðlaun

Nokkrir starfsmenn legudeildar skurðlækninga stilltu sér upp í myndatöku í tilefni verðlaunaafhendin…
Nokkrir starfsmenn legudeildar skurðlækninga stilltu sér upp í myndatöku í tilefni verðlaunaafhendingarinnar. Mynd: GB.

Sameiginleg starfsemi legudeildar skurðlækninga hlaut hvatningarverðlaun Sjúkrahússins á Akureyri en þau voru afhent á ársfundi sjúkrahússins nýlega. Þetta er í annað sinn sem sjúkrahúsið veitir slík verðlaun en ætlunin er að veiting þeirra verði árviss viðburður. Framkvæmdastjórn Sjúkrahússins á Akureyri ákvað í fyrra að veita árlega hvatningarverðlaun til þeirrar deildar sem að hennar mati hefur sýnt gott fordæmi um framsækni í störfum sínum eða skarað fram úr á annan hátt.

Anna Lilja Gunnarsdóttir, ráðuneytisstjóri velferðarráðuneytisins, afhenti verðlaunin fyrir hönd Sjúkrahússins á Akureyri en Anna Lilja Filipsdóttir veitti þeim viðtöku fyrir hönd starfsfólks. “Starfseiningin hefur á undanförnum árum sýnt mikla framsækni og metnað í störfum sínum, sem birtist m.a. í stöðugum endurbótum á vinnuferlum, góðri liðsheild og faglegri þjónustu. Þá hefur samstarf við aðrar deildir verið til fyrirmyndar,” segir m.a. í frétt frá Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Nýjast