Sama umferð um Héðinsfjarðargöng og í fyrra

Umferðin um Héðinsfjarðargöng er nánast sú sama í ár og hún var í fyrra. Einungis munar tveimur bílum að meðaltali á dag það sem af er ári. Þrír stærstu umferðarmánuðirnir eru framundan. Það lítur út fyrir að meðalumferðin á dag árið 2012 verði um 550 bílar (ÁDU). Það þýðir að reikna má með að rúmlega 200 þúsund ökutæki fari um göngin í ár og um 520 þúsund manns verði þróun umferðar með svipuðum hætti og árið 2011. Umferðin í janúar var tæpum 7% minni nú í ár miðað við árið 2011 en í maí á þessu ári var umferðin tæpum 11% meiri en fyrir ári síðan, segir á vef Vegagerðarinnar.

Friðleifur Ingi Brynjarsson verkefnastjóri umferðardeildar Vegagerðarinnar, segir varðandi umferðina um Héðinsfjarðargöng, að þetta verði að teljast jákvætt fyrir göng og samfélagið. “Þetta segir manni það að síðasta ár var ekki bara einnar nætur gaman af forvitnisumferð. Þeim hefur tekist að halda í horfinu.  Þegar göngin um Múlann voru opnuð á sínum tíma datt umferðin niður næstu tvö árin á eftir. Þannig við bjuggumst alveg eins við því að það gæti gerst þarna líka en svo virðist ekki raunin ef marka má  fyrstu sex mánuði ársins,” segir Friðleifur Ingi.




Nýjast