Sæludagur í Hörgársveit verður haldinn hátíðlegur í dag, laugardag, þar sem öll sveitin mun iða af lífi og boðið verður upp á allskyns viðburði. Má þar nefna fjórhjólafjör, bátatugþraut, smalahundasýningu, sandkastalakeppni og traktoraspyrnu, svo fátt eitt sé nefnt. Hátíðin hefst með keppni í sveitafitness við Möðruvelli í Hörgárdal kl. 11:00 og lýkur með ekta gamaldags sveitaballi í félagsheimilinu Melum um kvöldið.