SA Víkingar mæta Fjölni í Toppdeild karla í íshokkí í Skautahöllinni á Akureyri á morgun, laugardaginn 14. nóvember. Flautað verður til leiks klukkan 16.45 og má búast við hörkuleik enda hafa viðureignir liðanna í vetur verið fjörugar og spennandi.
Liðin hafa mæst tvisvar á tímabilinu. Fjölnir vann fyrri leik liðanna, 4-1, í Egilshöll í september, en SA Víkingar svöruðu fyrir sig með 8-6 sigri þegar liðin mættust á ný í Laugardalnum í október. Daniil Fursa og Baltasar Hjálmarsson áttu stórleik fyrir SA í síðari viðureigninni þar sem þeir skoruðu hvor um sig þrennu og Fursa lagði auk þess upp tvö mörk til viðbótar. Fjölnismenn náðu tveggja marka forskoti í leiknum áður en SA Víkingar sneru taflinu við og tryggðu sér sigurinn.
SA Víkingar sitja í efsta sæti Toppdeildarinnar með 16 stig eftir átta leiki. Fjölnir er í þriðja sæti með 12 stig eftir sjö leiki.
Næsti heimaleikur SA Víkinga eftir leikinn gegn Fjölni verður svo laugardaginn 12. desember klukkan 16.45 þegar SR kemur í heimsókn.