Rúmum 70 milljónum króna úthlutað úr Pokasjóði

Fulltrúar þeirra sem fengu úthlutað úr Pokasjóði til verkefna á Norðurlandi eystra.
Fulltrúar þeirra sem fengu úthlutað úr Pokasjóði til verkefna á Norðurlandi eystra.

Í dag var úthlutað úr Pokasjóði verslunarinnar við athöfn í Salnum í Kópavogi. Tæplega 71 milljón króna var úthlutað til 82 verkefna á sviði umhverfismála, menningar, mannúðar, íþrótta og útivistar um allt land, þar af til fjögurra verkefna á Norðurlandi. Stuðningur við verkefni fyrir börn og unglinga er áberandi við úhlutun Pokasjóðs að þessu sinni, en samtals er 20 milljónum króna úthlutað til fjölbreyttra úrræða  á því sviði. Styrkir til umhverfismála nema tæpum 38 milljónum króna. Frá upphafi hefur Pokasjóður úthlutað um 1.300 milljónum króna. Að Pokasjóði standa 160 verslanir um land allt, matvöruverslanir, vínbúðir og sérvöruverslanir. Pokasjóður fær tekjur sínar af sölu plastburðarpoka í þessum verslunum.

Eftirtaldir aðilar með aðsetur á Norðurlandi eystra fengu úthlutað sem hér segir:

 Skógræktarfélag S-Þingeyinga     Opnun Fossselsskógar, upplýsingaskilti                                        200.000

Þórður Vilhelm Steindórsson        Bílakaup vegna fjölfatlaðrar dóttur                                                  500.000

Hrísiðn                                       Eyðing kerfils samhliða nýtingu á ætihvönn                                    500.000

Húsgull                                      Uppgræðsla Hólasands með skógarplöntum, áburði og sáningu      2.000.000

 

Nýjast