Um síðustu áramót voru 12.225 sumarhús á Íslandi, langfelst á Suðurlandi eða 6.148. Þar á eftir kemur Vesturland, þar voru sumarhúsin í árslok 2.529.
Á Norðurlandi eystra voru sumarhúsin 914 um áramótin og hafði þeim fjölgað um 16 á árinu. Sumarhúsum á Norðurlandi eystra fjölgaði um 293 á einum áratug, þau voru 621 í loks ársins 2001.
Á Norðurlandi vestra voru sumarhúsin 398 um síðustu áramót, þar fjölgaði húsunum um nákvæmlega 100 á 10 árum.