Nýlega auglýsti Eining-Iðja eftir ráðgjafa til að starfa á sviði starfsendurhæfingar. Um er að ræða samvinnuverkefni stéttarfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu og VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs. Umsóknarfrestur rann út í vikunni og sóttu 32 aðilar um starfið. Capacent hefur umsjón með ráðningarferlinu og er nú að vinna úr umsóknunum. Þetta kemur fram á vef Einingar-Iðju. Eining-Iðja fær endurgreitt frá VIRK allan kostnað vegna þessara starfsmanna, þar á meðal vegna launa og húsnæðis. Ráðgjafar sjóðsins starfa fyrir öll stéttarfélög í Eyjafirði, bæði almenn og ríkis- og sveitarfélaga.