Rúm milljón safnaðist um helgina

Það voru margar girnilegar möffins í boði og úr vöndu að velja. Mynd: Margrét Þóra.
Það voru margar girnilegar möffins í boði og úr vöndu að velja. Mynd: Margrét Þóra.

Yfir 700 þúsund krónur söfnuðust á viðburðinum „Mömmur og möffins“ sem fram fór á Akureyri um helgina á hátíðinni Ein með öllu. Upphæðin rennur beint til fæðingadeildar Sjúkrahússins á Akureyri. Yfir 2000 möffins seldust í Lystigarðinum og vakti viðburðurinn mikla lukku. Þá söfnuðust 350 þúsund krónur á viðburðinum „Pabbar og pizzur“ en það var nýr dagskrárliður á hátíðinni. Upphæðin rennur til Krabbameinsfélags Akureyrar og er stefnt að því að þetta verði árlegur viðburður.

Nýjast