Þegar veturkonungur gengur í garð þurfa ökumenn að huga að ýmsum búnaði á bílum sínum. Um leið og veðrið fer að verða leiðinlegt að þá rjúka menn til og kaupa t.d. þurrkublöð og skipta um rafgeymi, segir Þorsteinn Jónsson stöðvarstjóri hjá Olís á Akureyri. Þar hefur starfsfólk haft í nógu að snúast undanfarna daga við að þjónustu bílaeigendur.
Það hefur verið gríðarleg sala síðustu tvær vikurnar. Rúðusköfurnar rjúka út og svo eru menn að kaupa dekkjahreinsi og yfirfara dekkin. Þetta eru allt hlutir sem er nauðsynlegt að gera og hafa í lagi. Þetta fylgir þessum árstíma. Maður finnur það líka sjálfur þegar maður keyrir að það er mikilvægt að hafa þurrkublöðin í lagi, sérstaklega þegar skyggnið er lélegt, segir Þorsteinn.
throstur@vikudagur.is