Öxnadalsheiðin er ófær og sömu sögu er að segja um Víkurskarð. Ófært er á milli Akureyrar og Dalvíkur og Ólafsfjarðarmúla hefur verið lokað vegna snjóflóðahættu. Ófært er í Héðinsfirði. Veðurstofan segir að á Norðurlandi eystra verði í dag norðan- norðvestanátt, 15-23 m/s, snjókoma, talsverð á köflum.Björgunarsveitarmenn þurftu í gærkvöld að sækja ökumann upp á Öxnadalsheiði, sem ætlaði að fara yfir heiðina á fólksbíl. Í gærmorgun þurfti að sækja þennan sama mann, þegar hann reyndi að aka yfir heiðina á fólksbílnum.
karleskil@vikudagur.is