Reisa á nýjan leikskóla við Glerárskóla
Engin leikskóli verður í hverfinu þegar Hlíðarból hættir í sumar en stefnt er á að byggja nýjan leikskóla við Glerárskóla. Mynd/Þröstur Ernir
Stefnt er að því að reisa nýjan leikskóla í Hlíðahverfi á Akureyri innan fárra ára. Verður leikskólinn annað hvort byggður við Glerárskóla eða hafður innan núverandi húsnæði skólans að einhverju leyti. Í fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar er gert ráð fyrir 230 milljónum í endurnýjun og viðbyggingu við Glerárskóla næstu þrjú árin.
Leikskólanum Hlíðarból mun verða lokað í sumar vegna sparnaðar hjá Akureyrarbæ og verður þá enginn leikskóli í hverfinu. Lokunin mætti mikilli mótspyrnu foreldra barna í Hlíðarbóli sem kröfðust þess að hætt yrði við lokun leikskólans.