Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir líkamsárás á hendur sambýliskonu sinnar. Atburðurinn átti sér stað í heimahúsi á Akureyri í febrúar í fyrra og sló maðurinn þáverandi sambýliskonu sína þrjú högg í andlitið með þeim afleiðingum að hún hlaut glóðarauga vinstra megin og bólgnaði og marðist á vinstri kinn. Ákærði játaði brot sitt skýlaust en hann var einnig dæmdur til að greiða brotaþola rúmlega 350 þúsund krónur í miskabætur og fjártjón, auk þess að greiða allan sakarskostnað.