Rafmagnslaust varð á Akureyri á Eyrinni, í miðbænum og syðri Brekkunni um kl. 8:15 í morgun. Ástæðan er bilun í streng í rafdreifikerfi Norðurorku. Vel gekk að koma rafmagninu á sem var komið á öll hverfi kl. 08:50. Ef rafmagn er ekki komið á skal aðgæta hvort lekaliði hefur slegið út. Norðurorka beinir einnig til húsráðanda að séu þeir í vafa um hvernig bregðast á við skal undantekningalaust haft samband við rafvirkjameistara hússins.