Rafmagnslaust varð í nokkrum hverfum norðan Glerár á Akureyri um kl. 8.30 í morgun. Starfsmenn Norðurorku vinna við að greina bilunina en svo virðist sem bilun sé á spennustigi. Búist er við að rafmagnsleysi verði á þessum svæðum næsta klukkutímann.
Árleg Forvarnaráðstefna VÍS var haldin í Hörpu fimmtudaginn 12. mars en á ráðstefnunni var fjallað um öryggismál og forvarnir fyrirtækja og stofnana frá öllum hliðum. Að þessu sinni var ráðstefnan tileinkuð umferðaröryggi og boðið uppá erindi, reynslusögur og innsýn í öflugt öryggisstarf fyrirtækja, auk umfjöllunar um þær áskoranir sem steðja að íslensku samfélagi á þessu sviði.
„Það er alltaf mjög mikið um að vera hjá okkur í marsmánuði og við vel sýnileg. Við finnum vel fyrir aukinni aðsókn þegar Mottumars er í fullum gangi. Það sýnir að vitundarvakning af því tagi skiptir gríðarlega miklu máli,“ segir Marta Kristín Rósudóttir verkefnastjóri dagskrár og viðburða hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis.
Framkvæmdir eru hafnar við nýja göngubrú yfir Glerár á móts við Glerártorg. Jafnframt því sem göngubrúin verður reist verða framkvæmdir við nýja jöfnunarstöð fyrir strætó á bökkum Glerár sunnan megin.
Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun að fela forstöðumanni atvinnu og menningarmála að ganga til samninga við Svartar bækur varðandi leigu á Laxdalshúsi til næstu fjögurra ára.
Hraðið – miðstöð nýsköpunar á Húsavík og Drift EA á Akureyri hafa hafið samstarf með það að markmiði að styrkja frumkvöðla samfélagið á Norðurlandi og skapa ný tækifæri fyrir hugmyndir og nýsköpun.
Samkomulagið felur meðal annars í sér samnýtingu á ...
Íslensku olíufélögin eru nær fjórfalt líklegri til að skila verðhækkunum til neytenda en verðlækkunum og álagning á bensín hefur verið sögulega há undanfarið. Eldsneytisverð gæti verið um 20 krónum lægra ef olíufélögin færðu álagningu a...