Það er allt að fara á fullt en stemmningin hjá okkur er alltaf mikil þegar þessi tími gengur í garð, segir Skúli Rúnar Árnason svæðisstjóri hjá Póstinum á Norðurlandi. Senn líður að jólum og þá fer jafnan í hönd háannatími hjá starfsmönnum Póstsins. Skúli segir gríðarlegt magn af pósti fara frá Akureyri ár hvert.
Ég hef ekki nákvæma tölu á því hvað þetta er mikið í ár en þyngdin hleypur á nokkrum tonnum. Við erum að senda mikið út fyrir landsteinana, mest til Norðurlandanna en einnig teygir þetta sig út um allan heim. Við Íslendingar erum allsstaðar og það vilja flestir gleðja sína nánustu um jólin, segir hann.
Halda í hefðirnar
Fólk heldur ennþá í þá hefð að senda jólakort sín á milli. Það er ákveðin stemmning í því að opna jólakortin með fjölskyldunni yfir hátíðirnar. Þrátt fyrir alla rafrænu þróunina undanfarin ár að þá virðist ekki draga úr þessu.
Veðrið til vandræða
Skúli segir starfsmenn póstsins ekki hafa farið varhluta af veðrinu á landinu undanfarnar vikur.
Veðrið setti starfssemina úr skorðum því þetta byggist allt á ferðum á milli staða og útburður féll niður sum staðar. En það munu allir fá póstinn fyrir hátíðirnar, við sjáum til þess, segir Skúli.