Óvíst er hvenær skólaárið hefst í Menntaskólanum á Akureyri næsta haust. Stefnt er að því að hefja það undir lok ágúst en fjárveitingar á fjáraukalagafrumvarpi dekka ekki nema rúmlega helming kostnaðar við þá breytingu. Frá þessu var greint á vef Rúv.
Unnið hefur verið að því síðustu misseri að færa skólaár MA til meira samræmis við skólahald í öðrum framhaldsskólum. Slíkt er forsenda fyrir auknu samstarfi framhaldsskóla á Norðurlandi eystra. Undanfarið hefur verið stefnt að því að gera þetta í áföngum, þannig að skólinn hefjist um mánaðamót ágúst september, skömmu á eftir öðrum skólum. Til að af því verði þarf að stytta sumarfrí starfsmanna fyrir breytinguna og það kostar sitt.
Kostnaðurinn er metinn á 53 milljónir króna en í frumvarpi til fjáraukalaga er lagt til að skólinn fái 30 milljónir. Jón Már Héðinsson skólameistari MA segir í samtali við Rúv að það liggi ekki ljóst fyrir nú hversu langt skólaárið verði fært fram. Það ræðst af fjárveitingunum sem fást í breytinguna.
Eins og Vikudagur fjallaði um sl. vetur er MA að rjúfa áratuga gamla hefð þar sem skólaárið við MA hefur lengi verið frábrugðið því sem tíðkast í flestum framhaldsskólum; hafist seinna á haustin og ekki lokið fyrr en með útskrift á þjóðhátíðardeginum.