Kjarnaskógur er einn allra vinsælasti útivistarstaður Akureyrar og þangað kemur jafnan mikill fjöldi fólks, ekki síst barnafólk. Steinar Óli Gunnarsson og kona hans Regína Siguróladóttir, fóru með barnabörnin sín í Kjarnaskóg sl. sunnudag en þau voru langt frá því að vera sátt við það sem við blasti við grillsvæðið í skóginum. Steinar Óli sagði að svæðið hafi verið vægast sagt suppulegt, auk þess sem töluvert vantar upp á eðlilegt viðhald, m.a. á tröppunum upp að grillhúsinu og á hengibrúnni þar rétt hjá. Við urðum fyrir áfalli yfir því hvernig ástandið þarna var og það er hreinlega slysahætta, bæði í tröppunum og á hengibrúnni. Rusladallarnir voru yfirfullir, þannig að fólk lét ruslapoka sína við hliðina á rusladöllunum og fuglinn hafði rifið pokana og dreift ruslinu um svæðið.
Steinar Óli sagði að Kjarnaskógur væri frábært útvistarsvæði og vinsælt bæði af heimafólki og gestum og því mætti það ekki gerast að svæðið væri látið drabbast svona niður. Þeir taki það til sín sem eiga það en ljóst er að þarna þarf að taka duglega til hendinni og fylgjast betur með því að þetta fallega svæði sé í lagi og snyrtilegt.
Kona sem Vikudagur ræddi við, sagði að salernið í Kjarnaskógi hefði einnig litið subbulega út um helgina og pappír vantað á salernin.