Óskað verði eftir tilboði í gerð launaúttektar

Ekki mældist marktækur munur á launum kynjanna í úttekt hjá Akureyrarbæ árið 2007.
Ekki mældist marktækur munur á launum kynjanna í úttekt hjá Akureyrarbæ árið 2007.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkti á fundi sínum í vikuni að fela framkvæmdastjóra að óska eftir tilboði í gerð launaúttektar. Ráðið telur mikilvægt að fylgjast vel með svo sá góði árangur sem náðst hefur í að jafna launamun kynjanna hjá sveitarfélaginu haldist. Á fundinum var rætt um úttekt á launum kvenna og karla sem starfa hjá Akureyrarbæ. Í jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar er gert ráð fyrir að slík úttekt verði gerð á árinu 2012. Í úttekt sem gerð var árið 2007 mældist ekki marktækur munur á launum kynjanna að teknu tilliti til starfs, starfssviðs, aldurs, starfsaldurs og vinnutíma.

Guðrún Þórsdóttir V-lista óskaði bókað: Ég tel mjög mikilvægt að launamunur kynjanna sé skoðaður til þess að hægt verði að leiðrétta ef um misrétti sé að ræða. Akureyrarbær getur ekki verið þekktur fyrir að borga ekki sömu laun fyrir sömu vinnu.

Regína Helgadóttir B-lista óskaði bókað: Í ljósi umræðu um neikvæða þróun á launamun kynjanna einkum hjá opinberum aðilum, tel ég brýnt að vinnu við úttekt á launum starfsfólks Akureyrarbæjar verði hraðað. Bendi ég á í því sambandi að í Jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar er kveðið á um að úttektina eigi að gera vorið 2012.

Nýjast