Opnun STÉTTARINNAR á föstudag

Stefán Pétur Sólveigarson, verkefnastjór Fab Lab Húsavík og Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri No…
Stefán Pétur Sólveigarson, verkefnastjór Fab Lab Húsavík og Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings þegar samningur var undirritaður á milli þeirra í síðasta mánuði. Nú gefst gestum kostur á að skoða aðstöðu STÉTTARINNAR á föstudag.

Föstudaginn 9. desember mun Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, opna með formlegum hætti nýja aðstöðu þekkingarklasans á Hafnarstétt 1-3 á Húsavík undir heitinu STÉTTIN. 

Húsnæðið er í eigu Langaness ehf, sem hefur staðið straum af vönduðum endurbótum og viðbyggingu. „Í tilefni þess að húseigendur munu nú afhenda síðasta hluta hins endurbætta húsnæðis til stofnana á sviði rannsókna, menntunar og nýsköpunar er við bjóða ykkur öllum að koma og gleðjast með okkur þennan föstudag á aðventunni og skoða ykkur um,“ segir í tilkynningu

Forseti Íslands verður með ávarp kl. 16:15 í miðrými hússins og fulltrúar húseigenda og íbúa hússins kynna aðstöðuna stuttlega. Þá mun Valdimar Guðmundsson syngja nokkur lög með hljómsveit sinni LÓN og söngkonunni RAKEL. Þar verður smjörþefurinn gefinn af tónleikum þeirra sem verða í Húsavíkurkirkju um kvöldið.

Í kjölfarið verður opið hús þar sem starfsfólk mun sitja fyrir svörum og sýna gestum aðstöðuna og starfsemina sem fram fer.


Athugasemdir

Nýjast