Opna fjölskyldustað í Gránufélagshúsunum

Veitingahús opnar í Gránufélagshúsunum. Mynd/Þröstur Ernir.
Veitingahús opnar í Gránufélagshúsunum. Mynd/Þröstur Ernir.

„Við vorum búin að leita lengi að húsnæði til að stækka við starfsemina. Okkur fannst þetta tilvalinn staður þar sem húsin eru sögufræg og eitt af kennileitum bæjarins,” segir Sigurður Jóhannsson veitingamaður á Akureyri. Hann mun ásamt Hebu Finnsdóttur og Róberti Hassler opna nýjan veitingastað í vor í gömlu Gránufélagshúsunum. „Þetta verður fjölskyldustaður, opið sjö daga vikunnar þar sem allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi í mat og drykk,” segir Sigurður, sem einnig rekur Strikið og Bryggjuna á Akureyri.

Mikil flóra er í veitingabransanum í bænum um þessar mundir og samkeppnin mikil. Sigurður segist hins vegar hvergi banginn. „Síðan ég opnaði Strikið árið 2005 hafa fimmtán veitingastaðir opnað og tíu þeirra hætt starfssemi. Þannig að margir staðir staldra stutt við. En við höfum fulla trú á þessu, við erum veitingafólk í húð og hár og þekkjum markaðinn,” segir Sigurður.

Strikið verður áfram rekið í óbreyttri mynd en svo gæti farið að Bryggjan muni falla inn í starfssemina í Gránufélagshúsunum.

throstur@vikudagur.is

 

Nýjast