01. janúar, 2013 - 09:22
Fréttir
Vinna hófst snemma í morgunn við að gera skíðasvæðið í Hlíðarfjalli klárt fyrir fyrsta opnunardag ársins eftir vetrarveðrið síðustu daga. Opið verður frá klukkan 12 til 16.
Guðmundur Karl Jónsson staðarhaldari segir að veðrið sé eins og best verður á kosið, 2-3 m/s og sex stiga frost.