Opið hús í Myndlistarskólanum á Akureyri

Fimmtudaginn 22. nóvember verður opið hús í Myndlistaskólanum á Akureyri frá 15:00 til 19:00. Opnunin er í boði nemenda af 1. 2. og 3. ári við  fagurlistardeild skólans, en undanfarnar þrjár vikur hafa nemarnir unnið undir leiðsögn listamannsins Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur. Meginmarkmið áfangans var sjálfsskoðun og í kjölfarið unnu þau sitt eigið persónulega rými. Útkoman er í formi skúlptúra, innsetninga, ljósmynda og gjörninga, sem nemendur bjóða gestum og gangandi að virða fyrir sér og upplifa með þeim. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Nemendur eru: Ásmundur Jón Jónsson, James Earl Ero Cisneros Tamidles, Jónína Björg Helgadóttir, Elísabet Inga Ásgrímsdóttir, Hekla Björt Helgadóttir, Margrét Kristín Karlsdóttir, Sigrún Birna Sigtryggsdóttir, Anna Elionora Olsen Rosing, Kolbrún Vídalín, Karólína Baldvinsdóttir, Sunna Björk Hreiðarsdóttir, Sandra Rebekka Dudziak, Freyja Reynisdóttir, Egill Logi Jónasson, Hildur Björnsdóttir, Ragnheiður Mekkín Ragnarsdóttir, Sigríður Jónsdóttir, Unnur Rósa Eyfjörð Ásgeirsdóttir og Gunnhildur Helgadóttir

Nýjast