„Ómetanlegt framlag"

Arinbjörn Þórarinsson afhentir Þorbjörgu Ingvadóttur styrkinn í gær fyrir hönd Vini Akureyrar.
Arinbjörn Þórarinsson afhentir Þorbjörgu Ingvadóttur styrkinn í gær fyrir hönd Vini Akureyrar.

Rúm milljón króna safnaðist á viðburðum tengdum hátíðinni Einni með öllu sem fram fór á Akureyri um verslunarmannahelgina sem rennur beint til góðgerðamála. Viðburðurinn “Pabbar og pizzur” safnaði 350 þúsund krónum fyrir Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis en um nýjan viðburð er að ræða. Fyrirtæki á Akureyri gáfu allt hráefni og öll vinna og undirbúningur var gefin.

Að sögn Þorbjargar Ingvarsdóttur, framkvæmdastjóra Krabbemeinsdeildar Akureyrar og nágrennis, skiptir stuðningur við félög í heimabyggð gríðarlega miklu máli. „Þar sem starfssemi okkar byggir að langmestu leyti á stuðningi almennings og fyrirtækja á félagssvæðinu er það ómetanlegt að fá framlag sem þetta,” sagði Þorbjörg.

Þá safnaði viðburðurinn “Mömmur og möffins” um 700 þúsund krónum og rennur upphæðin til fæðingadeildar Sjúkrahússins á Akureyri.

Nýjast