Öll tveggja ára börn og eldri fá inn á leikskólum á Akureyri í haust. Þetta segir Prepen Jón Pétursson formaður skólanefndar hjá Akureyrarbæ. Alls voru fjórtán börn á biðlista í lok júní fædd árið 2010 og biðu eftir svari um pláss. Við lögðum af stað með þá áherslu að tryggja öllum tveggja ára börnum pláss. Það er engin ástæða að ætla annað en að það gangi eftir segir Preben. Hins vegar er enn óvissa um hvort öll átján mánaða börnin sem sóttu um komist að. Ekki fengust upplýsingar um hvort bæst hefði á biðlistann.