MMR kannaði stuðning almennings við þá einstaklinga sem hafa lýst yfir framboði til komandi forsetakosninga. Af þeim sem tóku afstöðu voru 44,5% sem sögðust myndu kjósa Ólaf Ragnar Grímsson og 36,9% sem sögðust ætla að kjósa Þóru Arnórsdóttur. Þá voru 10,1% þeirra sem tóku afstöðu sem lýstu yfir stuðningi við Ara Trausta Guðmundsson, 4,6% vildu kjósa Herdísi Þorgeirsdótur, 2,0% Andreu J. Ólafsdóttur og 1,9% Hannes Bjarnason.
Niðurstaðan er því að tæpum átta prósentum munar á fylgi Ólafs Rangars og Þóru, sem er marktækur munur. Breytingar á fylgi einstakra frambjóðenda frá síðustu könnun eru þó innan vikmarka.
Sem fyrr reyndist töluverður munur á afstöðu fólks eftir því hvaða stjórnmálaflokka það sagðist styðja væri gengið til kosninga nú (og fer vaxandi frá fyrri könnunum). Þannig voru 67,2% framsóknarmanna, 63,7% sjálfstæðismanna og 45,7% stuðningsfólks Samtöðu sem sögðust kjósa Ólaf Ragnar. Á hinn bóginn voru 74,5% samfylkingarfólks, 59,5% Vinstri-grænna og 65,3% stuðningsfólks Bjartrar framtíðar sem sagðist vilja kjósa Þóru. Þá voru 62,0% þeirra sem sögðust styðja ríkisstjórnina sem jafnframt sögðust kjósa Þóru. Á móti voru 57,8% þeirra sem sögðust andvígir ríkisstjórninni sem sögðust vilja kjósa Ólaf Ragnar