Ökumenn hvattir til að sýna aðgát

Búast má við mikilli umferð um allt um helgina.
Búast má við mikilli umferð um allt um helgina.

Miklar annir hafa verið hjá björgunarsveitum landsins í sumar og framundan er ein stærsta ferðahelgi ársins, verslunarmannahelgin. Af því tilfefni vill Slysavarnafélagið Landsbjörg minna á nokkur grundvallaratriði sem hafa þarf í huga. Ef ferðast er utan þéttbýlla svæða skal alltaf skilja eftir ferðaáætlun t.d. á Safetravel.is eða láta ættingja vita af ferðaplani sínu. Áður en lagt er af stað inn á hálendið skal kanna aðstæður á svæðinu t.d. á þeim ám sem aka þarf yfir.

Töluvert hefur verið um óhöpp á malarvegum og skal alltaf gæta að aksturshraða hvort sem menn eru á hálendi eða láglendi. Finna má góð og holl ráð um ferðamennsku á vefsíðunni www.safetravel.is.

Að síðustu skal minna á að akstur á tjaldsvæðum þarf að vera með mikilli gát, þar eru börn að leik og því miður hafa orðið banaslys við þær aðstæður.

Nýjast