Óeðlilegt að niðurlægja nýnema

Jón Már Héðinsson.
Jón Már Héðinsson.

„Mér finnst ekki eiga við að það sé verið að taka á móti nýju starfsfólki með niðurlægingu. Ég held að það þroski ekki nokkurn mann að fá slíkar mótttökur,” segir Jón Már Héðinsson skólameistari við Menntaskólann á Akureyri. Vígslun nýnema, svokölluð busun, við framhaldsskóla hafa verið mikið í umræðunni undanfarna daga en þar er oft tilgangurinn að gera lítið úr nýnemum og þeir niðurlægðir á ýmsan máta.

Um 220 nýnemar hefja nám við Menntaskólann á Akureyri á fimmtudaginn kemur en alls verða nemendurnir 750, sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Jón Már segir að í MA sé sá háttur hafður á að nýnemar séu boðnir velkomnir til starfa á heilbrigðan máta.

„Við höfum breytt þessari busun verulega mikið á þann hátt að þetta sé gleði og skemmtun. Móttaka nýnema á að snúast um það að sýna nýnemum virðingu og taka út niðurlægingu. Hjá okkur er þetta þannig að ef nemendur þurfa að leysa þrautir eða eitthvað í þeim dúr að þá eru alltaf hópar. Einstaklingar eru aldrei teknir út. Við förum eftir lögum og einkunnarorðum okkar í þessu, sem er að sýna sjálfum okkur og umhverfinu virðingu. Að hefja nám á að vera uppbyggilegt og skemmtilegt,” segir Jón Már.

throstur@vikudagur.is

Nýjast