Innbæjarsamtökin á Akureyri hafa merkt leikvöllinn við Hafnarstræti sem ó-áhugaverðan stað með skilti sem venjulega auðkennir áhugaverða staði. Skiltinu hefur hins vegar verið breytt lítillega. Samtökin vilja með þessu skopast að bæjaryfirvöldum en svæðið þar sem leikvöllurinn er, beint á móti Laxdalshúsi, elsta húsi bæjarins, er í algerri niðurníðslu og er bæjaryfirvöldum til háborinnar skammar að sögn meðlima samtakanna.
Við sendum erindi til bæjaryfirvalda í sumar en höfum ekki fengið neitt svar ennþá, segir Kristján Helgason í stjórn Innbæjarsamtakanna í samtali við Vikudag. Samtökin hvetja bæjaryfirvöld til að hefja þegar í stað undirbúning að faglegri uppbyggingu á fjölnota útivistarsvæði fyrir gesti og íbúa svæðisins, börn og fullorðna.
Samkvæmt upplýsingum frá skipulagsnefnd Akureyrarbæjar er málið í vinnslu en til stendur að taka öll leiksvæði í bænum í gegn og verður það gert á næstu árum. Innbæjarsamtökin vilja ennfremur að svæðið verði hjarta hverfisins, eins konar þorpstorg, þar sem halda mætti til dæmis útimarkaði og sumarhátíð Innbæjarins.